Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, segir að alltaf hafi legið fyrir að Íslendingar myndu ábyrgjast lágmarksinnistæðu reikninga Icesave, eða sem nemur 20.887 evrum fyrir hvern innistæðureikning, í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins.
„Mér finnst rétt að það komi fram að meginástæðan fyrir því að ekki var hægt að fara með málið fyrir dóm var sú að ekki mátti leika vafi á að innistæður væru tryggðar. Ef menn féllust á að fá úr því skorið fyrir dómi mundi skapast réttaróvissa um það hvort innistæðutryggingar væru í gildi. Þar með hefði innistæðueigandi á Spáni, í Frakklandi eða annars staðar fengið tilefni til að efast um tryggingarnar og tekið út sparifé sitt. Slík réttaróvissa er óhugsandi.“
Ingibjörg Sólrún segir að ekki sé hægt að fara með Icesave-málið fyrir dómstóla vegna þess að þá skapaðist réttaróvissa um innistæðutryggingakerfið. „Slík réttaróvissa er óhugsandi.“ Hún segir þó að þetta merki ekki að Íslendingar geti ekki haldið sjónarmiðum sínum á lofti sem fórnarlömb gallaðrar tilskipunar ESB komi til þess að hún verði endurskoðuð. „En það er ekki fallega gert að halda á lofti lausnum sem eru ekki til staðar. Það eru ranghugmyndir að ætla að dómstólaleiðin hafi verið fær,“ segir Ingibjörg Sólrún.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir