„Veistu hver þetta er?“

Allir aðilar búa á Höfn í Hornafirði

Allir aðilar búa á Höfn í Hornafirði DV.

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 11:35

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Hornfirðingurinn Bjarki Kárason var í gær dæmdur fyrir hótanir gegn fjölskylduföður og tíu ára dóttur hans, í kjölfar þess að faðirinn kærði hann fyrir alvarlega líkamsárás nokkrum mánuðum fyrr. Bjarki hringdi að kvöldi til heim til fjölskylduföðursins og svaraði dóttir hans símanum.

Í dómnum sem féll í gær kemur fram að þá hafi Bjarki verið í símanum og spurt hana hvað hún væri gömul og í hvaða bekk hún væri. Hann hafi beðið um að fá að tala við pabba hennar og hún sagði hann vera sofandi. Hún sagði þá fyrir dómi að Bjarki hafi spurt hana hvort hún myndi eftir því hvernig pabbi hennar hefði litið út þegar hann hafi komið alblóðugur heim einu sinni. Hún skyldi fara og vekja pabba sinn ef hún vildi ekki sjá hann svoleiðis aftur.

Hún sagði einnig að ef hún myndi ekki segja pabba sínum að taka kæruna til baka ætlaði hann að ráðast á hann aftur og aftur og að þeim yrði ekki líft á Höfn ef hann myndi ekki gera það. Svo hafi hann sagt henni hver hann væri.

Fjölskyldufaðirinn sagði fyrir dómi að dóttirin hafi vakið hann og rétt honum símann þar sem hann sagði halló. Þar hafi verið sagt: „Veistu hver þetta er?“ Fjölskyldufaðirinn hafi svarað því neitandi og hafi þá viðkomandi kynnt sig sem Bjarki Kára. Svo hafi hann sagt: „Ef þú dregur ekki þessa ákæru til baka verður þér ekki líft á Íslandi.“

Nánar um málið í DV í dag


Nánar um málið í DV í dag. Kaupa áskrift!


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 22:30

Réttað yfir nasista-fangaverði

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 20:00

Pólitískt vanhæfi Þorgerðar

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 18:51

Svartar horfur á vinnumarkaði

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 17:03

„Kaupþing hefur keypt sér aðgang að ráðamönnum“

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:28

Hjaltalín tryllti Hróarskeldu - Myndir

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:15

Slökktu "eldinn" með fjarstýringunni

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:29

Snákar, köngulær og kakkalakki

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:15

Geiri er Ted Bundy

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:53

Lánabók Kaupþings: Arðgreiðslurnar 1,2 milljarðar

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:43

Þarf að greiða 29 milljónir vegna slyss

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:30

Skilur alla eftir á ljósum á rafmagnsbílnum

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:13

Friðrik hættir hjá Landsvirkjun

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:45

„Ekkert betra til en konur“

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:15

FME rannsakar: DV heldur áfram

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:41

Bróðir Jackson: „Ég vildi að ég hefði farið frekar“

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:37

Sauðfé minnkar út af loftslagsbreytingum

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:32

Jafnréttisstofa á „gráu svæði“

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:56

Þurfa að greiða 70 milljónir fyrir samkeppnislagabrot

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:30

Ekki samráð við Íslandsbanka um kaup á HS Orku

Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:18

Ekki fyrir lofthrædda