ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Vann eineltismál gegn ríkinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:00 › 23. júní 2009
Fárviðri á veðurstofunni. Á því tímabili sem um ræðir í dómnum logaði Veðurstofa Íslands í eineltismálum og veðurfræðingar flúðu störf sín.

Fárviðri á veðurstofunni. Á því tímabili sem um ræðir í dómnum logaði Veðurstofa Íslands í eineltismálum og veðurfræðingar flúðu störf sín.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Ásdísi Auðunsdóttur 500 þúsund krónur í skaðabætur vegna eineltis á Veðurstofu Íslands. Þótti sannað að yfirmaður konunnar hefði sýnt af sér saknæmt athafnaleysi varðandi kvartanir konunnar um einelti.

Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröfu Ásdísar um bætur vegna fjárhagslegs tjóns.

Ásdís krafðist þess að fá tæpar 19 milljónir króna í bætur.

Ásdís starfaði sem veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands nær samfellt sem fastráðinn starfsmaður frá 1999 þar til í ágúst 2007, en þá fór hún að eigin ósk í launalaust leyfi sem átti að standa í 12 mánuði.

Taldi Ásdís sig hafa sætt einelti af hálfu Þórönnu Pálsdóttur, sviðsstjóra veðursviðs á Veðurstofu Íslands og að hafa verið flæmd úr opinberu starfi af Magnúsi Jónssyni veðurstofustjóra, og orðið fyrir bæði fjártjóni og verulegum miska vegna þess.

Þá dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur íslenska ríkið til að greiða Ásdísi 400.000 krónur í málskostnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.