ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Olís lækkar aftur og skýtur á stjórnvöld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:27 › 23. júní 2009
Olís tekur á sig skattahækkun stjórnvalda.

Olís tekur á sig skattahækkun stjórnvalda.

Olís, sem í gær hækkaði verð á bensínlítranum um 12,5 krónur, lækkaði verðið á nýjan leik í morgun. Þá segir í tilkynningu félagsins að óeðlilegt sé að skattabreyting ríksins mismuni söluaðilum eftir birgðastöðu.

Á heimasíðu birtist eftirfarandi tilkynning:

„Stefna Olís er að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt samkeppnishæft verð og góða þjónustu.
Félagið lækkar því bensínverð um kr. 12,50 á lítra með vsk og tekur því á sig tímabundið, af samkeppnisástæðum, skattahækkun sem tók gildi 28. maí sl.
Félagið vill um leið árétta að óeðlilegt er að svo stór skattabreyting hins opinbera mismuni söluaðilum eftir birgðastöðu.“

Eftir hækkunina í gær var algengasta verð á landinu hjá Olís í sjálfsafgreiðslu 192,3 krónur lítrinn fyrir 95 okt. og 196,6 fyrir dísel.

Í dag, tæpum sólarhring eftir hækkunina, er algengasta verðið hjá Olís í sjálfsafgreiðslu 179,8 kr lítrinn fyrir 95 okt. og 179,6 fyrir dísel.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.