Milljarður hungraðra í heiminum
Heimilislaus móðir og barn í Bangladess. Hungur er algengast í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu. AFP.
Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum þjáist einn milljarður jarðarbúa víðs vegar um heiminn vegna hungurs. Fjöldinn hefur aldrei verið meiri að sögn Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og áætlað er að hann hafi aukist um eitt hundrað milljónir vegna alheimsfjármálakreppunnar. Hátt matvælaverð er á meðal þeirra þátta sem aukið hafa á hungur í heiminum.
Jacques Diouf, yfirmaður Matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar, fór ekki í grafgötur með skoðun sína á alvarleika málsins: „Hin þögla hungurkreppa – sem hefur áhrif á einn sjötta hluta alls mannkyns – veldur alvarlegri hættu fyrir frið og öryggi í heiminum.“
Stærstur hluti í þróunarlöndunum
Að sögn Sameinuðu þjóðanna búa nánast allir þeir sem lifa við vannæringu í þróunarlöndunum, þar af flestir í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu, eða 642 milljónir. Næstflestir búa í Afríku, sunnan Sahara, eða 265 milljónir. Aðeins um fimmtán milljónir lifa við sult í þróuðu löndunum.
„Það er brýnt að við komumst að víðtækri niðurstöðu um heildarfjöldann og leiðir til að útrýma hungri í heiminum með hraði og grípum til nauðsynlegra ráðstafana,“ sagði Jacques Diouf.
Syrtir enn frekar í álinn
Samkvæmt spá Alþjóðabankans um hvernig kreppan mun bitna á þróunarlöndunum mun ein trilljón bandaríkjadala gufa upp í hagkerfi þeirra. Samkvæmt tölum sem bankinn birti í gær mun fjármagnsflæði inn í þróunarlöndin minnka sem nemur helmingi í ár í kjölfar verulegra áfalla á síðasta ári.
Skuldinni af fjölgun þeirra sem búa við hungur hefur verið skellt á lækkandi tekjur og aukið atvinnuleysi sem leitt hefur til versnandi aðgengis að matvælum. Engu að síður eru vísbendingar um að þróuðu löndin búi að meiri auðlegð en nokkru sinni áður, sagði Kostas Stamoulis, talsmaður Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna.
„Aldrei fyrr í sögu mannkyns hafa verið jafnmargir hungraðir í heiminum. Og það er mótsagnakennt, því stór hluti heims er mjög ríkur þrátt fyrir efnahagskreppuna,“ sagði Stamoulis.
Landbúnaður forsenda hagvaxtar
Jacques Diouf, framkvæmdastjóri Matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar, hvatti ríkisstjórnir til að útvega þróunar- og fjárhagsaðstoð til að hleypa nýju blóði í landbúnað, og þá sérstaklega til smábænda.
„Fjárfestingu í landbúnaði verður að auka því fyrir stærstan hluta fátækra landa er heilbrigður landbúnaðargeiri nauðsynlegur til að forðast fátækt og hungur og skilyrði heildarhagvaxtar,“ sagði Diouf.
Sameinuðu þjóðirnar vara við því að fátækt fólk í borgarsamfélögum muni að öllum líkindum eiga í mestu erfiðleikum við að takast á við heimskreppuna því samdráttur í útflutningi og erlendum fjárfestingum muni hafa mest áhrif á vinnumarkaðinn.
Farandverkamenn í borgum eru líklegir til að snúa aftur í dreifbýlið og hafa byrðina með sér í farteskinu.
Minna svigrúm
Tekjur hafa verulega dregist saman í þróunarlöndunum og víða treysta fjölskyldur á tekjur skyldmenna sem starfa á erlendri grundu.
Þar sem efnahagskreppan hefur meira eða minna skollið á allri heimsbyggðinni samtímis hafa þróunarlöndin minna svigrúm til að aðlagast henni, segir í tilkynningu frá Matvæla- og landbúnaðarstofnuninni.
Áætlað er að hagvöxtur í þróunarlöndunum verði einungis 1,2 prósent í ár eftir að hafa verið 6 prósent árið 2008 og 8 prósent árið 2007.
Þrátt fyrir að verð á matvælum á heimsmarkaði hafi lækkað í matvæla- og olíukreppunni 2006-2008 virðist sem matvælaverð hafi hækkað í þróunarlöndunum nú.
Einnig eru litlar líkur taldar á að fátækar þjóðir muni njóta fjárhagsaðstoðar hinna ríku og nýlega voru Frakkar og Ítalir gagnrýndir fyrir að ganga á bak orða sinna um aukna aðstoð til handa fátækum þjóðum.
Hungur í heiminum
Hungur í heiminum
- Asía-Kyrrahafssvæðið: 642 milljónir
- Afríka, sunnan Sahara: 265 milljónir
- Suður-Ameríka og Karíbahafssvæðið: 53 milljónir
- Mið Austurlönd og Norður-Afríka: 42 milljónir
- Þróuðu löndin: 15 milljónir
Heimild: Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 22:30
Réttað yfir nasista-fangaverði
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 20:00
Pólitískt vanhæfi Þorgerðar
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 18:51
Svartar horfur á vinnumarkaði
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 17:03
„Kaupþing hefur keypt sér aðgang að ráðamönnum“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:28
Hjaltalín tryllti Hróarskeldu - Myndir
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:15
Slökktu "eldinn" með fjarstýringunni
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:29
Snákar, köngulær og kakkalakki
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:15
Geiri er Ted Bundy
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:53
Lánabók Kaupþings: Arðgreiðslurnar 1,2 milljarðar
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:43
Þarf að greiða 29 milljónir vegna slyss
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:30
Skilur alla eftir á ljósum á rafmagnsbílnum
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:13
Friðrik hættir hjá Landsvirkjun
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:45
„Ekkert betra til en konur“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:15
FME rannsakar: DV heldur áfram
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:41
Bróðir Jackson: „Ég vildi að ég hefði farið frekar“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:37
Sauðfé minnkar út af loftslagsbreytingum
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:32
Jafnréttisstofa á „gráu svæði“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:56
Þurfa að greiða 70 milljónir fyrir samkeppnislagabrot
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:30
Ekki samráð við Íslandsbanka um kaup á HS Orku
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:18







