ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Lögmæt húsleit hjá Hannesi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:02 › 23. júní 2009
Hannes Smárason vildi að húsleit á heimili hans yrði úrskurðuð ólögmæt.

Hannes Smárason vildi að húsleit á heimili hans yrði úrskurðuð ólögmæt.

  • Heimili Hannesar að Fjölnisveg.

    Heimili Hannesar að Fjölnisveg.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í hádeginu að húsleit Efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á tveimur heimilum Hannesar Smárasonar að Fjölnisvegi 9 og 11 hafi verið lögmæt.

Hannes fór fram á að húsleit og haldlagning gagna á heimili hans yrði úrskurðuð ólögleg.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit á heimilum Hannesar 3. júní í tengslum við möguleg skattalagabrot félaganna Oddaflugs og Primusar sem Hannes Smárason átti að sögn Morgunblaðsins.

Auk þess að gera húsleit á heimilum Hannesar var gerð húsleit á lögmannsstofunni Logos. Gunnar Sturluson sem er einn stjórnenda Logos var framkvæmdastjóri og sat í stjórnum félaganna Oddaflugs og Primusar.

Oddaflug heitir í dag EO eignarhaldsfélag og Primus heitir FI fjárfestingar. FI fjárfestingar er skráð með 3,1 prósent hlut í BYR.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.