Hótaði félagsráðgjafa og fjölskyldu hans
Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 39 ára gamlan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir í garð félagsráðgjafa og starfsmanns Barnaverndar Reykjavíkur.
Sendi maðurinn ógnandi smáskilaboð í síma eiginmanns félagsráðgjafans og í síma ólögráða sonar hennar.
Konan hafði farið með málefni barna mannsins. Sonur hans hefði verið í tímabundnu fóstri en það hefði verið með leyfi móður sem færi með forsjá hans. Maðurinn hafi hins vegar haft leyfi til að hitta son sinn undir eftirliti Barnaverndar sem hann var afar ósáttur með.
Það var 29. desember 2006 sem sms-sendingar hófu að berast í síma barna konunnar og eiginmanns hennar. Skilaboðin voru öll sett fram sem spurningar og voru á þá leið að konan væri barnaníðingur, þjófur og morðingi. 11 ára tíburasonum konunnar bárust flest skilaboðin Eiginmanni konunnar bárust skilaboð þess efnis að hún væri að halda fram hjá honum. Konan óttaðist um fjölskyldu sína og sagði í skýrslu sinni til lögreglu að börn hennar lifðu í stöðugum ótta sökum þessa.
Konan tók saman hluta þeirra skilaboð sem börnum hennar og eiginmanni hefðu borist, sum höfðu glatast.
Reyndi að kenna dóttur sinni um
Þann 12. febrúar 2007 kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þess efnis að Símanum hf. yrði gert skylt að upplýsa um IP-tölu þeirrar tölvu eða þeirra tölva sem umrædd sms-skilaboð voru send úr af heimasíðu Símans. Reyndist umrædd IP-tala vera skráð á nafn mannsins hjá Vodafone.
Í yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst maðurinn ekkert kannast við að hafa haft samband við konuna á netinu. Kvaðst hann vita til þess að dóttur hans væri í nöp við konuna og hefði hún haft aðgang að nettengingu á tölvu hans á þeim tíma sem rannsóknin beindist að. Væri honum hins vegar ekki kunnugt um að hún hefði sent sms-skilaboð eða önnur boð til kæranda.
Brotið ófyrirleitið
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykajvíkur segir að maðurinn sé sakfelldur fyrir að viðhafa hótanir gagnvart starfsmanni Barnaverndar. Brotið sé einkum ófyrirleitið þar sem hótanirnar beindust að barnungum tvíburasonum konunnar. Um hafi verið að ræða gróft brot gegn friðhelgi einkalífs konunnar og fjölskyldu hennar. Þótti hæfileg refsing vera þrír mánuðir í fangelsi, skilorðsbundnir til þriggja ára.
„Veistu hvað Y er búin að drepa mörg börn í dag?“
Eftirfarandi smáskilaboð voru send úr tölvu með IP tölu, sem skráð var á manninn, af heimasíðunni www.siminn.is:
Í eftirfarandi útskrift af skilaboðunum er konan táknuð með Y og eiginmaður hennar sem Z:
1. Þann 29. desember kl. 06:15:37: ,,Hvort er betra ad taka tvibura eda bara helminginn?“
2. Þann 29. desember kl. 13:48 í farsímanúmer …: ,,Ert vonandi farinn ad sjá ad Y heldur framhjá thér oft í viku Z?“
3. Þann 31. desember kl. 11:50:50: ,,Hvad skedur ef einn tviburi fær ovart rakettu framan I sig? Verdur hann tá ekki eins og brodirinn?“
4. Þann 31. desember kl. 16:47:38: ,,Veistu Hvad Y er buin ad drepa mörg börn i dag?“
5. Þann 1. janúar kl. 08:50:48: ,,Passadi mamma tin sug æa ad tid sæud hana ekki meida og stela börnum sídasta dag ársins?????????“
6. Þann 2. janúar kl. 15:14:49: ,,Veist thu hvad mamma thin er buin ad stela mörgum börnum i dag og selja tau?“
7. Þann 6. janúar kl. 17:55:51: ,,Veistu hvad Y lét stela mörgum börnum og lokadi inni i gær bara af tvi henni langadi I peninga?“
8. Þann 7. janúar kl. 23:37:23: ,,Veistu virkilega ekkert hvad Y hefur stoldi mörgum börnum ur skola og fengid pening fyrir??“
9. Þann 16. janúar kl. 16:55:41: ,,Kannski fáid tid nytt barnakjör i matin ef Y hefur slátrad einhverjum börnum i dag! Veistu had?“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 22:30
Réttað yfir nasista-fangaverði
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 20:00
Pólitískt vanhæfi Þorgerðar
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 18:51
Svartar horfur á vinnumarkaði
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 17:03
„Kaupþing hefur keypt sér aðgang að ráðamönnum“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:28
Hjaltalín tryllti Hróarskeldu - Myndir
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 16:15
Slökktu "eldinn" með fjarstýringunni
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:29
Snákar, köngulær og kakkalakki
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 15:15
Geiri er Ted Bundy
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:53
Lánabók Kaupþings: Arðgreiðslurnar 1,2 milljarðar
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:43
Þarf að greiða 29 milljónir vegna slyss
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:30
Skilur alla eftir á ljósum á rafmagnsbílnum
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 14:13
Friðrik hættir hjá Landsvirkjun
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:45
„Ekkert betra til en konur“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 13:15
FME rannsakar: DV heldur áfram
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:41
Bróðir Jackson: „Ég vildi að ég hefði farið frekar“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:37
Sauðfé minnkar út af loftslagsbreytingum
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 12:32
Jafnréttisstofa á „gráu svæði“
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:56
Þurfa að greiða 70 milljónir fyrir samkeppnislagabrot
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:30
Ekki samráð við Íslandsbanka um kaup á HS Orku
Föstudagur 3. júlí 2009 kl 11:18







