ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Hannes Smára fyrir dómi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:45 › 23. júní 2009
Hannes Smárason.

Hannes Smárason.

  • Heimili Hannesar að Fjölnisvegi.

    Heimili Hannesar að Fjölnisvegi.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðar um það í hádeginu í dag hvort húsleit Efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á tveimur heimilum Hannesar Smárasonar að Fjölnisvegi 9 og 11 hafi verið lögmæt.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit á heimilum Hannesar 3. júní í tengslum við möguleg skattalagabrot félaganna Oddaflugs og Primusar sem Hannes Smárason átti að sögn Morgunblaðsins.

Auk þess að gera húsleit á heimilum Hannesar var gerð húsleit á lögmannsstofunni Logos. Gunnar Sturluson sem er einn stjórnenda Logos var framkvæmdastjóri og sat í stjórnum félaganna Oddaflugs og Primusar.

Oddaflug heitir í dag EO eignarhaldsfélag og Primus heitir FI fjárfestingar. FI fjárfestingar er skráð með 3,1 prósent hlut í BYR.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.