Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Kínverjar fá klámfengnar og dónalegar upplýsingar í gegnum Google að mati yfirvalda þar í landi. AFP
Forráðamenn leitarsíðunnar Google hyggjast gera það sem nauðsynlegt er til að sía klám úr leitarniðurstöðum kínversku útgáfu leitarsíðunnar.
Með því hyggjast þeir koma til móts við gagnrýni kínverskra yfirvalda sem segja að Google „dreifi klámfengnum og dónalegum upplýsingum“.
Google hefur fengið tvær viðvaranir fyrir að leyfa leitarniðurstöður sem innihalda klám og nú reyna kínversk stjórnvöld að tryggja að allar nýjar tölvur seldar í landinu séu með síu.





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu