Fjölskylduföðurinn segist hafa orðið reiður þegar dóttir hans sagði honum hvað var sagt við hana. MYNDIN ER SVIÐSETT
Fjölskyldufaðirinn sem varð fyrir ofbeldi og hótunum sagði í samtali við DV í gær að hann vissi ekki hvernig honum væri innanbrjósts eftir að hafa lesið dóminn lauslega í gær. „Ég veit ekki hvort ég er sáttur, það er náttúrlega best að þetta sé búið. Ég vona að þetta verði endalokin, þetta er búið að vera langt mál og erfitt.“ Hann segir dóttur sína líða ágætlega eftir atvikum og beri sig vel.
Aðspurður hvernig honum hafi liðið eftir að Bjarki hafði hótað dóttur hans sagði hann: „Ég var reiður, hann gat hótað mér en eins og ég sagði við vitnaleiðslurnar tók ég því bara þannig að hann væri hræddur. Það átti að fara dæma í árásinni og svo þegar hún sagði mér hvað hann hefði sagt, varð ég reiður.“ Hann segist reyna að bera höfuðið hátt. „Þetta er rosalega mikið áfall. Það er erfitt að jafna sig.“ Hann vill einnig beina til fólks sem verður fyrir slíkum hótunum að kæra þær og láta lögregluna vinna sitt verk. Hann býr enn á Höfn en baðst undan því að koma fram undir nafni vegna dóttur sinnar.
Allt um málið í DV í dag




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning