Það eru ekki bara innlendir fjölmiðlar sem hafa áhuga á að spjalla við Bubba. Bandarískir fréttaskýringaþættir elta hann uppi líka. Mynd: Heiða Helgadóttir
Bubbi Morthens opnar sig í fréttaskýringaþættinum 20/20 sem sýndur er á sjónvarpstöðinni ABC. Bubbi Morthens hefur ekkert að fela og talar hreinskilnislega í innslagi um hrun íslenska hagkerfisins. Talið er að tæpar þrjár milljónir Bandaríkjamanna horfi á þáttinn vikulega. Innslagið nýtur einnig mikilla vinsælda á vef stöðvarinnar.
„Ég skulda mikið. Ég tapaði öllu. Ég tapaði milljónum,“ sagði Bubbi Morthens í viðtali við fréttaskýringaþáttinn 20/20 sem sýndur er á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC í síðustu viku.
Innslagið hefur vakið mikla athygli á vef sjónvarpsstöðvarinnar og er á lista yfir vinsælustu mynddiska stöðvarinnar. Í þættinum koma einnig fram Birgitta Jónsdóttir, nýkjörin þingkona, og fyrrverandi forsætisráðherra Geir H. Haarde.
Í samtali við DV vildi Bubbi litlu bæta við innslagið sem rúmar þrjár milljónir Bandaríkjamanna horfðu á í síðustu viku. „Ef ég er í þessu innslagi, talar það örugglega bara fyrir sig sjálft.“ Hann viðurkennir þó að hafa ekki enn séð umrætt viðtal og að hann hafi ekki mikinn áhuga á að horfa á sjálfan sig.
Nánar um málið í DV í dag




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir