Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Kannabisefni fundust við húsleit á heimili fimmtugs karls í austurborginni. Marijúana fannst í húsi í miðborginni og var maður um fertugt yfirheyrður í þágu rannsóknar málsins.
Piltur um tvítugt var handtekinn í Mosfellsbæ en sá var með fíkniefnum í fórum sínum. Þá var karl á fertugsaldri handtekinn í Breiðholti en viðkomandi er grunaður um fíkniefnamisferli. Sá var á stolnum bíl en í honum fundust ýmsir munir sem grunur leikur á að séu þýfi.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“