Danskir veðurfræðingar spá sannkallaðri bongóblíðu á Hróarskeldu-hátíðinni í ár en hún fer fram fyrstu helgina í júlí. Hitastigið verður tuttugu gráður og yfir og mun Hróarskelda haldast þurr í ár eins og í fyrra.
Spekingarnir telja enga þörf á að hátíðargestir taki með sér regnföt og stígvél heldur geti spókað sig um á stuttbuxum og bol alla helgina.
Vont veður hefur lengi fylgt hátíðinni en nú er það á undanhaldi eftir gífurlegan hita í fyrra og engin breyting verður á í ár.
Í ár fer hitinn niður í fimmtán gráður á kvöldin og verður allt að 25 stig á daginn. Möguleiki er á skúrum eins og í fyrra en á síðasta ári komu regndroparnir sem himnasending fyrir hátíðargesti því stundum var ekki líft í steikjandi sumarhitanum.
Meðal stærstu hljómsveita á hátíðinni í ár eru Coldplay og Nick Cave and the Bad Seeds.





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu