ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Áfram Eva Joly

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:16 › 23. júní 2009
Tæplega sex þúsund Íslendingar á Facebook treysta Evu Joly.

Tæplega sex þúsund Íslendingar á Facebook treysta Evu Joly.

Tæplega sex þúsund manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem heitir einfaldlega „Áfram Eva Joly“. Alls hafa 120 einstaklingar skrifað á vegg hópsins þar sem fólk segist meðal annars treysta Evu Joly og vill að hún kyrrsetji eignir auðmanna og uppræti spillingu á Íslandi.

Kröfur forráðamanna hópsins eru skýrar. Þeir vilja að „kröfum Evu Joly verði framfylgt og spillingin upprætt.“

Eva hefur gegnt starfi sem sérstakur ráðgjafi vegna rannsókna á efnahagsbrotum sem tengjast hruni fjármálakerfisins hér á landi. Eva er víðkunn af rannsóknum sínum á fjármálabrotum og fjármálaspillingu í Evrópu og víðar og gengdi áður stöðu rannsóknardómara í Frakklandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.