ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Áform um rýmri fóstureyðingarlög

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:49 › 23. júní 2009
Rómversk-kaþólska kirkjan berst gegn áformum ríkisstjórnar Spánar um rýmri fóstureyðingarlög.

Rómversk-kaþólska kirkjan berst gegn áformum ríkisstjórnar Spánar um rýmri fóstureyðingarlög.

Rómversk-kaþólska kirkjan á Spáni hefur endurnýjað baráttu sína gegn áformum ríkisstjórnar landsins um að rýmka fóstureyðingalöggjöf þess.

Samkvæmt tillögum um umbætur yrði fóstureyðing heimil upp að 14. viku frá getnaði og einnig yrði hægt að heimila fóstureyðingu við 22. viku staðfesti læknir að heilsa móður væri í hættu ef meðgöngu yrði framhaldið eða ef taldar væru líkur á að fóstur yrði vanskapað.

Fóstureyðingalög landsins eru frá 1985 og samkvæmt þeim er fóstureyðing heimil allt að 12. viku og þá eingöngu ef um getnað vegna nauðgunar er að ræða.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.