Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sjö meðlimir tveggja mótorhjólagengja voru í gær dæmdir í sex ára fangelsi fyrir óspektir á flugvellinum í Birmingham í janúar á þessu ári. Þrír mannanna eru meðlimir í Hells Angels, eða Vítisenglum og fjórir þeirra í samtökunum Outlaws.
Mennirnir voru ákærðir fyrir heiftarleg ofbeldisverk á flugvellinum en einn maður hlaut alvarlega höfuðáverka og var um tíma óttast um líf hans. Mótorhjólasamtökin höfðu lengi eldað grátt silfur saman sem endaði í miklum slagsmálum á flugvellinum í Birmingham.
Dómarinn í málinu sagði að hann hefði ekki átt nokkurra kosta völ þegar hann ákvað refsingu yfir mönnunum. Þeir væru engin unglömb og slagsmálin hafi verið skipulögð fyrirfram.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu