ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Vilja að dómskerfið taki á hvítflibbaglæpamönnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:29 › 20. júní 2009
Frá mótmælafundi Radda fólksins í vetur. Þær eru komnar aftur af stað og ætla að láta í sér heyra á Austurvelli í dag.

Frá mótmælafundi Radda fólksins í vetur. Þær eru komnar aftur af stað og ætla að láta í sér heyra á Austurvelli í dag. Mynd Kristinn Magnússon

„Kröfur samtakanna eru skýrar: 1. Stöðvum ICESAVE- samninginn 2. Mótmælum sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja 3. Krefjumst þess að dómskerfið taki á hvítflibbaglæpamönnum,“ segir á heimasíðu Radda fólksins sem boðað hafa til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan 15.

Er þetta þrítugasti útifundur samtakanna en þau fóru af stað skömmu eftir bankahrunið. Ræðumenn dagsins eru þau Andrea Ólafsdóttir, stjórnarkona í Hagsmunasamtökum Heimilanna og Jóhannes Þ. Skúlason, sagnfræðingur og grunnskólakennari. Fundarstjóri er sem fyrr Hörður Torfason.

Rúmir þrír mánuðir eru liðnir frá síðasta útifundi Radda fólksins en hann fór fram 14. mars.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.