ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Um 100 manns á Austurvelli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:20 › 20. júní 2009
Um 100 manns eru nú á Austurvelli á útifundi Radda fólksins. Allt hefur farið vel fram og enginn verið til vandræða.

Um 100 manns eru nú á Austurvelli á útifundi Radda fólksins. Allt hefur farið vel fram og enginn verið til vandræða. Mynd Róbert Reynisson

Um 100 manns eru nú á Austurvelli þar sem Raddir fólksins halda útifund. Að sögn lögreglu hefur allt gengið vel og enginn verið til vandræða. Fundurinn í dag er þrítugasti útifundur Radda fólksins en sá síðasti var haldinn þann 14. mars.

Kröfur Radda fólksins eru eftirfarandi:

1. Stöðvum ICESAVE- samninginn
2. Mótmælum sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja
3. Krefjumst þess að dómskerfið taki á hvítflibbaglæpamönnum

Ræðumenn dagsins eru þau Andrea Ólafsdóttir, stjórnarkona í Hagsmunasamtökum Heimilanna og Jóhannes Þ. Skúlason, sagnfræðingur og grunnskólakennari. Fundarstjóri er sem fyrr Hörður Torfason.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.