ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Þjófar gripnir með Google

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:16 › 20. júní 2009
Það var svona bíll sem myndaði þjófana í Groningen í Hollandi í september á síðasta ári.

Það var svona bíll sem myndaði þjófana í Groningen í Hollandi í september á síðasta ári.

Tæknin getur oft komið að góðum notum og því fékk fjórtán ára hollenskur piltur að kynnast. Pilturinn varð fyrir því óláni að vera rændur í heimabæ sínum Groningen í Hollandi í september á síðasta ári. Hann var að hjóla þegar þjófar hlupu að honum og stálu af honum öllu lauslegu.

Það var svo fyrir skemmstu að pilturinn var að skoða borgina Groningen, með aðstoð Google Street View, að hann sá sjálfan sig og þjófana fyrir aftan fyrir hreina tilviljun. Hafði myndavélabíll frá Google, sem kortleggur borgir og bæi víðsvegar um heiminn og gerir notendum kleift að skoða sig um á netinu, verið á ferð örfáum augnablikum áður en þjófarnir létu til skarar skríða.

Pilturinn hafði samband við lögregluna sem hafði samband við forsvarsmenn Google. Lögreglan fékk upprunalegu myndina í hendurnar og tókst með henni að hafa uppi á þjófunum. Í ljós kom að þeir voru tvíburabræður og eiga þeir nú ákæru yfir höfði sér fyrir þjófnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.