Í gærkvöldi var sýndur stuttur þáttur á ABC sjónvarpsstöðinni um íslenska efnahagshrunið. Í þættinum komu meðal annars fram Bubbi Morthens, Geir H. Haarde og Ólafur Arnarson, höfundur bókarinnar Sofandi að feigðarósi.
Innskotið var sýnt í hinum virta fréttaskýringaþætti 20/20 og bar það yfirskriftina: New Normal: Iceland Goes Back to Fishing Roots. Ólafur Arnarson gerði þáttinn að umtalsefni á bloggsíðu sinni í gær. Þar sagði hann að sjónvarpsmennirnir hafi komið hingað til lands í byrjun mánaðarins.
„Ég hafði aldrei þessu vant sett á mig bindi því ég reiknaði með að viðtalið færi fram við settlegar aðstæður. Veðrið var hins vegar svo gott þegar Bill Weir, fréttamaður, og tökulið hans kom að heimsækja mig að við ákváðum að fara niður í fjöru og taka viðtalið þar.Þar sat ég svo með hálsbindi á stórum steini í vel á aðra klukkustund og svaraði spurningum fréttamannsins,“ sagði Ólafur á bloggsíðu sinni.
Í þættinum segir Bubbi Morthens meðal annars að hann sé hamingjusamur þó hann hafi tapað miklu í efnahagshruninu: „I got a new born baby, I got a beautiful Wife, I have friends, I have family, I have my guitar and that‘s all I need. Life goes on.“
Myndbandið um Ísland er númer sex í röðinni af þeim myndböndum sem hægt er að fletta á milli.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning