Segir skuldina við gömlu bankanna nema 93 milljörðum
Ragnar segir að lífeyrissjóður Verslunarmanna skuldi gömlu bönkunum rúma 93 milljarða króna vegna gjaldeyrissamninga
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR segir að lífeyrissjóður Verslunarmanna skuldi gömlu bönkunum rúma 93 milljarða króna vegna gjaldeyrissamninga. Þetta sé skuld sem nemi 38 prósentum af öllum eignum sjóðsins. Þá segir hann ýmis venslatengsl VR og gömlu bankanna grunsamleg.
Ragnar gerir það sem hann kallar „hrikalega áhættusækni Lífeyrissjóðs verslunarmanna“ að umtalsefni á bloggsíðu sinni.
Hann spyr hvort gjaldeyrisskiptasamningar (afleiðusamningar) hafi verið óþarfa áhættusækni eða varnir. Af hverju verið var að gera slíka samninga sem mótvægi við gengis hagnað/tap sem erlendar fjárfestingar áttu að bera umfram ávöxtunarkröfu, í ljósi þess að innlend ríkisskuldabréf báru mun betri raunávöxtun en almennt þekkist í heiminum.
Þá spyr Ragnar af hverju slíkir samningar voru gerðir við bankana „sem allir veðjuðu gegn krónunni.“ Bankarnir hafi verið helstu ráðgjafar lífeyrissjóðanna.
Svo segir Ragnar orðrétt á bloggsíðu sinni:
„Hafa einhverjir þessara aðila notið vildarkjara umfram hinn hefðbundna félagsmann í VR eða LV á Tímabilinu frá 1.Janúar 2000 til 1. Janúar 2009 eða fengu þau niðurfellingu á ábyrgðum vegna hlutabréfakaupa? Áttu tengdir aðilar í fjárfestingafélögum? Lífeyrissjóðurinn virðist hafa verið rekin sem fjölskyldufyrirtæki frekar en eftirlaunasjóður.
Gunnar Páll Pálsson Formaður VR, Stjórnarformaður LV og Stjórnarmaður gamla Kaupþings.
Ásta Pálsdóttir eiginkona Gunnars og Starfsmaður Kaupþings er skráður lykilstarfsmaður hjá Kaupþingi þann 21.07.2003 hjá FME er nr.23 á listanum.
Samkvæmt því er Ásta eitthvað meira heldur en almennur starfsmaður eins og Þorgeir og Gunnar hafi marglýst yfir.
Þorgeir Eyjólfsson Forstjóri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna (fyrrverandi).
Sigríður Kristín Lýðsdóttir eiginkona Þorgeirs og starfsmaður Kaupþings.
Börn þeirra
Lýður Þorgeirsson hjá fyrirtækjasviði Kaupþings. Hann kallar sig VP investment banking hjá Kaupthing. Hann starfar sem sérfræðingur á fyrirtækjasviði Kaupþings.
Guðrún Þorgeirsdóttir Starfar sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Exista stærsta eiganda Kaupþings. En Lífeyrissjóður Verslunarmanna var meðal stærstu eiganda Exista og Kaupþings. Hún er á fruminnherjalista hjá Lýsingu þar sem hún er varastj.maður.
Guðmundur B.Ólafsson Lögmaður VR, Guðmundur starfaði frá 1989-2002 hjá VR en starfar nú sem verktaki fyrir félagið.
Nanna E. Harðardóttir eiginkona Guðmundar er forstöðumaður við útlánaeftirlit Kaupþings (sem er innan áhættustýringar) og er sambærileg staða og Tryggvi Jónsson var í í Landsbankanum.Þau tvö voru svo á lista Morgunblaðsins yfir þá starfsmenn sem talið var að hefðu fengið lán sín afskrifuð hjá Kaupþingi.
Til að Ólafur Ólafsson & co Kjalar hf. hafi getað tekið framvirkan gjaldeyris afleiðusamning gegn krónunni (að krónan lækkaði) upp á 110 milljarða, sem Kjalar gerði 180 milljarða kröfu á gamla Kaupþing að væri uppfylltur, þá þurfti einhver að veðja á móti þeim sömu upphæð með krónunni (að krónan hækkaði). Lífeyrissjóður Verslunarmanna tók það hlutverk að sér - Gunnar Páll stjórnarformaður LV og formaður VR var einnig í stjórn Kaupþings og sat líka í lánanefnd. Eru því miklar líkur á að hann hafi veðjað með og á móti eftir því hvoru megin borðsins hann sat.
Fleiri útrásarfyrirtæki léku sama leikin þar með talin Bakkavör og Exista sem voru að stórum hluta í eigu Lífeyrissjóðs Verslunarmanna.
Það er með öllu óskiljanlegt að nokkur maður hafi veðjað á hækkun krónunar fyrir gjalddaga jöklabréfanna haustið 2008. Vitað var með margra ára fyrirvara að krónan mundi hrynja á þeim tímapunkti.“
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 23:35
Válisti yfir flugfélög
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 22:15
Feitur maður í brjóstahaldara gerði usla
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 21:50
Gerir við skriðdreka
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 21:00
Tólf aðdáendur Jacksons hafa framið sjálfsmorð
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 20:34
Sirrý á Rás 2
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 19:49
Þúsund manns skora á Ólaf Ragnar
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 19:36
Aftur á slysstað
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 19:31
Rússneskur blaðamaður deyr
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 19:16
Alþingi samþykki ruglið
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 18:29
Jackson er í felum í Austur-Evrópu
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 18:25
Sautján ára á ofsahraða
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 16:40
Milljarðatjón vegna kvótabrasks
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 16:38
Flestar kvartanir vegna verðmerkinga
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 15:47
Neitar sök í nauðgunarmáli
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 15:45
Helgi hættur - Kaupþing þakkar vel unnin störf
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 15:14
Slagsmál út af dauða Jackson
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 14:58
Dæmdur fyrir hótanir og vopnalagabrot
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 14:44
Hvað er hægt að gera fyrir 893 milljónir?
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 14:20
„Lengra getur spillingin ekki náð“
Þriðjudagur 30. júní 2009 kl 14:08









