ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Sala á Porsche minnkar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:50 › 20. júní 2009
Sala á Porsche hefur minnkað verulega undanfarin misseri.

Sala á Porsche hefur minnkað verulega undanfarin misseri.

Eitt af því fyrsta sem menn spara við sig í efnahagskreppu eins og nú ríður yfir heimsbyggðina eru dýrir bílar. Þýski bílaframleiðandinn Porsche hefur mátt finna fyrir þessu því sala á nýjum hefur minnkað mikið.

Porsche seldi 28 prósent færri bíla á tímabilinu frá ágúst 2008 til loka apríl 2009, miðað við sama tímabil árið áður. Í þessum tölum eru ekki seldir bílar frá Volkswagen en Porsche jók eignarhlut sinn í fyrirtækinu í 51 prósent í janúar á þessu ári.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.