ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Lánuðu allt of mikið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:17 › 20. júní 2009
Gunnar Birgisson er formaður LSK.

Gunnar Birgisson er formaður LSK. Mynd DV

Hlutfall lánveitinga af eignum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK) fór allt upp í tuttugu prósent en leyfilegt hámark samkvæmt lögum er tíu prósent. Eins og greint var frá í gær hefur Fjármálaeftirlitið kært stjórn LSK til efnahagsbrotar ríkislögreglustjóra.

Gunnar I. Birgisson, fráfarandi bæjarstjóri, er formaður stjórnar LSK. Þá situr Ómar Stefánsson í stjórn sjóðsins fyrir hönd Framsóknarflokks og Flosi Eiríksson fyrir Samfylkinguna. Jón Júlíusson situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd starfsmanna bæjarins en fimmti stjórnarmaðurinn er Sigrún Guðmundsdóttir.

Lánveitingar stjórnar LSK námu 500 til 600 milljónum króna þegar mest lét, samkvæmt Fréttablaðinu í dag. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir í samtali við blaðið að hann sé mjög undrandi og stjórnin hafi ekki átt aðra kosti. „Allt í einu eigum við töluverða peninga sem losna hjá Sparisjóði Mýrarsýslu sem og öðrum; hvað á að gera við þá? Hverjum er best treystandi fyrir þeim? Það sem við ákváðum að gera var að lána bænum þá til mánaðar í senn á hæstu vöxtum,“ segir Flosi í samtali við Fréttablaðið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.