ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Innbrotsþjófur í vellystingum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:45 › 20. júní 2009
Bruneau úðaði í sig humri og hvítvíni. Hann þarf að greiða gjaldið fyrir það og þarf að borða fangelsismat næstu misserin.

Bruneau úðaði í sig humri og hvítvíni. Hann þarf að greiða gjaldið fyrir það og þarf að borða fangelsismat næstu misserin.

Karlmaður sem braust inn á veitingastaðinn Portland Lobster í Maine í Bandaríkjunum þarf að venjast matnum í fangelsinu eftir að hann gerði vel við sig á staðnum eftir að hafa brotist inn.

Það var starfsfólk staðarins sem fann manninn sofandi í sófa á staðnum þegar það mætti til vinnu einn morguninn í þessari viku. Maðurinn hafði úðað í sig humri fyrir tugi þúsunda króna og hvítvíni af bestu gerð áður en hann leið út af í sófanum. Þá gleymdi hann að loka hurðinni á ísskáp á staðnum sem gerði það að verkum að mikið af mat fór til spillis.

Maðurinn, sem heitir Paul Bruneau, var handtekinn og á hann yfir höfði sér dóm fyrir innbrot og þjófnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.