ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 2m/s ESE

Fullar fangageymslur á Akureyri

08:56 › 20. júní 2009
Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast í nótt.

Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast í nótt. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast í nótt en hinir árlegu Bíladagar fara þar fram um helgina. Margt var um manninn í miðbæ Akureyrar í nótt en að sögn varðstjóra hjá lögreglunni gekk allt slysalaust fyrir sig þó mikið hafi verið kvartað undan hávaða. Fangageymslur eru fullar eftir nóttina.

Að sögn varðstjóra voru tveir ökumenn teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum áður og ók hann því réttindalaus. Tveir menn voru teknir grunaðir um ölvunarakstur. Þá voru níu teknir fyrir of hraðan akstur en sá sem hraðast ók mældist á 127 kílómetra hraða rétt utan við Akureyri, þar sem hámarkshraði er 90.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.