DV leitaði til fjölda málsmetandi álitsgjafa í leitinni að björtustu von Íslands. Efnahagslífið var ofarlega í huga margra sem lýsti sér í afgerandi niðurstöðu. Hin norsk/franska Eva Joly situr á toppnum yfir þá einstaklinga sem Íslendingar setja mest traust á en enginn komst með tærnar þar sem Eva er með hælana.
Álitsgjafar DV voru 28 talsins og er bakgrunnur þeirra misjafn. Meðal álitsgjafa má nefna Þorbjörn Broddason prófessor, Sölva Tryggvason fjölmiðlamann, Hildi Eir Bolladóttur prest og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarfulltrúa.
Sem fyrr segir fékk Eva flest atkvæði. Aðrir sem fylgdu á eftir henni voru stjórnmálamennirnir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Einn lýsti Bjarna sem „einu voninni hægra megin,“ á meðan annar segir Sigmund Davíð vera einn af „fáum stjórnmálamönnum sem virkilega hafa vit á því hvað er að gerast og koma með djarfar, en um leið raunhæfar hugmyndir.
Listann í heild sinni má nálgast í helgarblaði DV.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“