ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

DV kemur upp um spillingu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:30 › 19. júní 2009

DV er sá fjölmiðill sem hefur staðið sig best í að ljóstra upp um spillingarmál í íslensku samfélagi á síðustu misserum. Þetta er niðurstaða könnunar sem Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, gerði í júníbyrjun.
„Mér finnst athyglisvert að DV skuli koma svona hátt þarna út því það hefur tiltölulega litla útbreiðslu, allavega miðað við stóru blöðin, Fréttablaðið og Morgunblaðið, sem og ríkismiðlana og ljósvakamiðlana,“ segir Birgir Guðmundsson, lektor í stjórnmálafræði og kennari við fjölmiðlafræðideild Háskólans á Akureyri.

„Hvort sem þeir sem þarna svara hafa lesið DV eða ekki er ljóst að DV hefur allavega það orð á sér að vera gagnrýninn fjölmiðill,“ segir Birgir.

„Hver eftirtalinna fjölmiðla telur þú að hafi staðið sig best í að ljósta upp um spillingarmál í íslensku samfélagi á síðustu misserum?“ er meðal þeirra spurninga sem MMR lagði fyrir í netkönnun dagana 9. til 13. júní. Úrtakið var 18-67 ára Íslendingar, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Þátttakendur í könnuninni voru 849.

Þar af tóku 472 afstöðu til spurningarinnar. Flestir þeirra, eða 23,3 prósent, telja að DV hafi þar staðið sig best. Fast á hæla Dagblaðsins kemur Fréttastofa RÚV en 22,4 prósent telja hana hafa staðið sig best þegar kemur að uppljóstrun spillingarmála.

MMR gerði könnun á trausti til fjölmiðla um miðjan maímánuð sem vakti mikla athygli. Þar kom í ljós að aðeins 15 prósent landsmanna bera mikið traust til fjölmiðla sem er heldur lítið. Traustið hafði þá farið þverrandi frá desember 2008 en samkvæmt könnun sem MMR gerði báru þá 23 prósent mikið traust til fjölmiðla. Fréttastofa RÚV bar þar höfuð og herðar yfir aðra fjölmiðla en flestir treystu henni. Fáir sögðust þá treysta DV og vekur því athygli að nú telja flestir þann fjölmiðil best til þess fallin að uppræta spillingu í samfélaginu. Sama fyrirtæki gerði báðar kannanirnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?