Hvalur 9 hélt í sína fyrstu veiðiferð á þessari vertíð klukkan eitt í nótt. Ætlunin er að skjóta eina langreyð. Talsverður hópur fólks hafði safnast saman við Ægisgarð og fylgdist með þegar landfestar voru leystar. Hvalföngurum var klappað lof í lófa þegar skipið hélt af stað.
Um miðnættið var vinna í fullum gangi við fallbyssu skipsins. Áhöfnin var þegar um borð og gufuvélin blés þegjandalega. Hátt í hundrað manns voru viðstaddir þegar landfestar voru leystar og klöppuðu ákaft þegar skipið hélt af stað. Þarna voru eldri hvalveiðimenn og yngri, fjölskyldur þeirra, vinir og vandamenn.
Það var mál manna við við höfnina í nótt að ekki tæki langan tíma að finna og skjóta fyrstu langreyðina. Jafnvel væri von á skipinu innan sólarhrings. Reiknað er með að Hvalur 8 haldi til veiða eftir helgina. Bæði skipin verða við veiðar í sumar.











Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða