Gríman fór fram í gær í Borgarleikhúsinu við mikinn fönguð viðstaddra og landsmanna sem fylgdust með í sjónvarpinu. Mörg skemmtileg atriði voru sýnd á milli tilnefninga til að mynda tvö lög úr söngleiknum Grease. Björn Thors vann verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í sýningunni Vestrinu eina.
HANDHAFAR GRÍMUNNAR 2009
SÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Utan gátta eftir Sigurð Pálsson í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn annaðist Kristín Jóhannesdóttir.
LEIKSKÁLD ÁRSINS
Sigurður Pálsson fyrir leikverkið Utan gátta í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Kristín Jóhannesdóttir fyrir leikstjórn í leiksýningunni Utan gátta í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Vestrinu eina í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Harpa Arnardóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Steinar í djúpinu í sviðssetningu Lab Loka og Hafnarfjarðarleikhússins.
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Bergur Þór Ingólfsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Milljarðamærin snýr aftur í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Birna Hafstein fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Steinar í djúpinu í sviðssetningu Lab Loka og Hafnarfjarðarleikhússins.
LEIKMYND ÁRSINS
Gretar Reynisson fyrir leikmynd í leiksýningunni Utan gátta í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
BÚNINGAR ÁRSINS
Gretar Reynisson fyrir búninga í leiksýningunni Utan gátta í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
LÝSING ÁRSINS
Halldór Örn Óskarsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Utan gátta í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
TÓNLIST ÁRSINS
Guðni Franzson fyrir tónlist í leiksýningunni Steinar í djúpinu í sviðssetningu Lab Loka og Hafnarfjarðarleikhússins.
SÖNGVARI ÁRSINS
Valgerður Guðnadóttir fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Söngvaseiður í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur.
DANSARI ÁRSINS
Margrét Bjarnadóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Húmanímal í sviðssetningu Mín og vina minna og Hafnarfjarðarleikhússins.
DANSHÖFUNDUR ÁRSINS
Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir fyrir kóreógrafíu í leiksýningunni Húmanímal í sviðssetningu Mín og vina minna og Hafnarfjarðarleikhússins.
BARNASÝNING ÁRSINS
Leiksýningin Bólu-Hjálmar eftir Leikstjórn annaðist Ágústa Skúladóttir.
ÚTVARPSVERK ÁRSINS
Útvarpsleikritið Yfirvofandi eftir Sigtrygg Magnason. Tónlist eftir Úlf Eldjárn. Hljóðsetning Einar Sigurðsson. Leikstjórn annaðist Bergur Þór Ingólfsson.
HEIÐURSVERÐLAUN LEIKLISTARSAMBANDS ÍSLANDS Dansarinn, danshöfundurinn og listdansstjóri San Francisco- ballettsins Helgi Tómasson fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu danslistar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar