ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Vaknaði með 56 tattú á andlitinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:27 › 17. júní 2009
Kimberley ætlaði bara að fá 3 stjörnur en fékk 56 eftir stuttan blund í stólnum

Kimberley ætlaði bara að fá 3 stjörnur en fékk 56 eftir stuttan blund í stólnum

Kimberley Vlaminck, 18 ára stúlka frá Brussel, segir að húðflúrarinn sem tattúaði á hana 56 stjörnur á andlitið, hafi talað svo rosalega lélega ensku og frönsku að hann misskildi hana þegar hún fór á stofuna til hans í Courtrai í Belgíu. Hún ætlaði aðeins að fá þrjár stjörnur. Hún kveðst hafa sofnað þegar að húðflúrarinn byrjaði að húðflúra hana.

„Ég lokaði augunum og fann engan sársauka, svo sofnaði ég. Þetta er hræðilegt. Hann hefur gert mig að viðundri. Ég get ekki farið út á götu núna án þess að fólk horfi á mig. Áður fyrr málaði ég mig alltaf fyrir framan spegil, en núna sleppi ég því bara alveg,“ segir Kimberley.

Rouslan Toumaniantz, húðflúrarinn, segir hana hafa ekki gert neinar athugasemdir eftir að hún vaknaði. Vandamálið hafi hins vegar byrjað þegar faðir hennar kom á stofuna brjálaður og kærasti hennar hætti með henni. „Ég gerði bara það sem hún bað mig um að gera.“

Kimberley ætlar að fara í laser-aðgerð til að láta fjarlægja 53 stjörnur, en ætlar að halda þeim þremur, sem hún bað um í upphafi eftir. Aðgerðin mun kosta í kringum 2 milljónir króna og mun hún eflaust vera með ör þar sem eftir er.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.