Mynd frá v. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, Steinunn Sigurðartdóttir fatahönnuðir borgarlistamaður 2009, Áslaug Friðriksdóttir formaður menningar- og ferðamálaráðs. Fyrir framan er sonur Steinunnar sem húin tileinkaði verðlaunin, Alexander Viðar Pálsson.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri útnefndi Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuð Borgarlistamann Reykjavíkur 2009. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Áslaug Friðriksdóttir formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Við þetta tækifæri var Steinunni veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé. Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi.
Steinunn hóf framhaldsnám við listaháskóla í París en flutti sig síðan til New York. Þaðan útskrifaðist hún fyrst Íslendinga úr listaháskólanum Parson School of Design í New York með láði og BFA gráðu í fatahönnun árið 1986. Steinunn á langan feril að baki við tísku- og fatahönnun, var yfirhönnuður hjá Gucci, Calvin Klein og La Perla og starfaði áður sjálfstætt með mörgum þekktum hönnuðum. En aldamótaárið 2000 stofnaði hún eigið fyrirtæki, STEiNUNNI og opnaði verslun á síðasta ári við Laugaveg í Reykjavík.
Og héðan úr Reykjavík berst hróður hennar víða um heim. Hún hefur sagt í blaðaviðtölum að hrærigrautur lista og hönnunar hér á landi sé hennar helsti innblástur. Hún kjósi því heldur að starfa hér en erlendis. Steinunn Sigurðardóttir sýnir glæsilega í verkum sínum mikilvægt samspil náttúru, menningar og handverks.
Steinunn hefur náð þeim einstaka árangri að komast í þann meistaraflokk fatahönnunar. Auk þess að hafa verið með tískusýningar á eigin línu um allan heim hafa verk hennar verið til sýnis á lista og hönnunarsöfnum og hönnunarsöfn keypt verk hennar fyrir safneign sína.
Hún hefur hlotið margvíslegar aðrar viðurkenningar eins og Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu (2007), Norrænu hönnunarverðlaunin Gínuna (2007), Tilnefningu til Íslensku sjónlistaverðlaunanna (2006) og Menningarverðlaun DV sem hönnuður ársins (2003).
Menningar- og ferðamálaráð útnefnir borgarlistamann. Ráðið skipa: Áslaug Friðriksdóttir formaður, Jakob Hrafnsson varaformaður, Sif Sigfúsdóttir, Brynjar Fransson, Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla), Dofri Hermannsson og Hermann Valsson.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar