ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Unnustinn var klámstjarna í leyni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 17. júní 2009

Haylie Hocking, 27 ára kona frá Bretlandi, komst að því fáeinum vikum fyrir brúðkaup sitt að unnusti hennar, Jason Brake, lék í klámmyndum og starfaði sem strippari. Hún komst að því þegar að vinkona hennar var að skipuleggja gæsapartý fyrir hana. Þar leitaði hún að strippara til að skemmta stúlkunum og rakst þar á Jason með konu í klámmynd.

Haylie aflýsti brúðkaupinu þegar hún komst að iðju unnusta síns. Parið kynntist á síðasta ári þegar Jason kom reglulega í búðina þar sem hún starfaði. Hann sagði henni að hann væri einkaþjálfari og í kjölfarið fóru þau á nokkur stefnumót.

Strax í upphafi fannst henni Jason vera rómantískur, hugulsamur og ástríðufullur elskhugi og það var aðeins sex mánuðum eftir að þau byrjuðu saman að hann flutti inn til hennar. Jason keypti reglulega handa henni blóm og skartgripi, en fór oft burt um helgar, þar sem hann sagðist vera að þjálfa fólk í líkamsræktarstöðvum í bæjum í kring. Eftir aðeins átta mánuði bað hann hennar og keypti handa henni flottann demantshring. Sú trúlofun varði þó stutt.

„Ég held að ég muni aldrei geta treyst manni aftur. Það var ekki séns að ég ætlaði að giftast klámstjörnu,“ segir Haylie við Daily Telegraph. Jason segist þó elska hana enn. „Kynlífshliðin mín var aðeins fyrir myndavélina, en Haylie skilur ekki að ég var aðeins að leika. Mér þykir þetta leitt og vildi alls ekki særa hana. Ég elska Haylie og ég skal hætta að leika í klámmyndum ef hún biður mig um það.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.