ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Sveitalubbar í Ameríku

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:35 › 17. júní 2009

Bandaríski fréttavefurinn Huffington Post hefur nokkuð látið sig málefni Íslands varða síðustu mánuði, eftir bankahrunið. Ísland var enn til umfjöllunar á vefnum á þriðjudag þegar Íris Erlingsdóttir, blaðamaður vefsins, skrifaði grein um hrunið.

Í greininni er komið inn á myndina frægu sem tekin var af hjónunum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Kristínu Ólafsdóttur í lystisnekkju í Cannes fyrir nokkru. Heitið sem blaðamaður, eða sá sem setti myndina inn við greinina, gaf myndinni er athyglisvert: 2009-06-16- hillbilliesoficeland
bjorgolfurthorandkristin2.jpg, sem þýða mætti sem sveitalubbar Íslands Björgólfur Thor og Kristín.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.