Sigurjón Árnason var ráðinn sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík til að kenna inngangskúrs í fjármálaverkfræði um síðustu áramót. Gunnar Guðni Tómasson forseti tækni- og verkfræðideildar segir að Sigurjón hafi verið ráðinn á faglegum forsendum vegna þekkingar hans og kunnáttu. Það sé annarra stofnana að dæma um hvort hann hafi gert eitthvað af sér í öðrum störfum.
Eftir að Sigurjón Árnason lét af störfum sem bankastjóri Landsbankans og hafði fengið 70 milljóna króna lán hjá eigin lífeyrissjóði tók hann að sér stundakennslu við Háskólann í Reykjavík. Sigurjón kenndi námskeiðið Inngangur að fjármálaverkfræði fyrir fyrsta árs nemendur í BS-námi í fjármálaverkfræði. Gunnar Guðni Tómasson forseti tækni- og verfræðideildar Háskólans í Reykjavík segir að Sigurjón hafi verið einn af um 100 stundakennurum sem ráðnir voru til starfa innan deildarinnar síðasta vetur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna