Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, hefur kallað yfir sig reiðiöldu með leiðara sínum í dag þar sem hann gagnrýnir framgöngu Evu Joly, ráðgjafa ríkisstjórnarinnar, í málum sem snúa að bankahruninu. Telur ritstjórinn að misskilngur sé útbreiddur varðandi hlutverk Evu.
„Eva Joly hefur sem sagt ekkert vald um hverja skal rannsaka og síðar mögulega ákæra ef efni gefa til. Hún er ráðgjafi, og eins og gildir um slíka, hefur sá sem ræður þá í vinnu, frjálst val um hvaða ráð þeirra hann kýs að nýta sér; öll, engin, eða aðeins þau sem eru talin skynsamleg,“ skrifar ritstjórinn.
Hann segir að Eva Joly, sem hann kallar þá norsk-frönsku, hafi brugðist að hluta í starfi sínu sem ráðgjafi. Svo er að skilja á ritstjóranum að hlutverk Evu eigi ekki að vera að auka tortryggni!
„... Joly er ráðin sem sérfræðingur í rannsókn efnahagsbrota. Á því sviði vann hún magnaða sigra fyrir nokkrum árum. Að hún skuli vera útlendingur er auðvitað líka lykilatriði í stöðu hennar hér á landi. Traustið á íslensku embættismannakerfi er laskað eftir hrunið. Utanaðkomandi sérfræðingi í ráðgjafahlutverki hlýtur ekki síst að vera ætlað það hlutverk að auka tiltrú og slá á þá tortryggni sem teygir sig út í flest horn. Í því hlutverki hefur Joly því miður brugðist. Með ummælum sínum um ríkissaksóknara hefur hún sáð skaðlegum og ómaklegum efasemdum. Þegar orð hennar féllu lá þegar fyrir að Valtýr var búinn að segja sig frá öllum málum tengdum rannsóknum saksóknara bankahrunsins.“
Jón Kaldal bendir á að aðalstarf Evu Joly sé það að vera þingmaður á Evrópuþinginu. Orð hennar og æði beri þess fyrst og fremst merki að þar er stjórnmálamaður á ferðinni. Jón Kaldal gengur svo langt í leiðara sínum að leggja til að Joly verði látin víkja.
„.. Hugleiðingar stjórnmálamannsins og þjóðfélagsrýnisins Joly trufla hins vegar verulega stöðu hennar sem sérfræðiráðgjafa ríkisstjórnarinnar í rannsóknum á efnahagsbrotum. Ríkisstjórn ætti að hugleiða að fá annan erlendan sérfræðing í það hlutverk. Það er þörf á að minnka tortryggni í samfélaginu. Ekki auka hana eins og helsta framlag Joly hefur verið.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna