ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ríkisstjórn fyrir banka en ekki fólk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:10 › 17. júní 2009
Fyrsti ríkisráðsfundur vinstristjórnarinnar.

Fyrsti ríkisráðsfundur vinstristjórnarinnar.

Þrír af hverjum fjórum sem taka afstöðu telja að stjórnvöld leggi meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna, samkvæmt nýrri könnun MMR fyrir DV. Bankastjóri Kaupþings segir úrræði stjórnvalda fyrir heimilin ýmist of þung í vöfum eða ekki duga. Lektor við Háskólann í Reykjavík segir aðgerðaáætlun stjórnvalda byggja á ófullnægjandi upplýsingum.

Skuldir sem hafa aukist verulega, verðbólga sem landsmenn hafa ekki átt að venjast, afborganir sem fólk ræður ekki við, króna í frjálsu falli og umdeilanlegur árangur af því að berjast gegn hremmingum heimilanna. Allt þetta spilar inn í að stór hluti þjóðarinnar telur stjórnvöld leggja meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR fyrir DV.

61,8 prósent allra aðspurðra og 76,6 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast frekar eða mjög sammála fullyrðingunni: Ríkisstjórnin leggur meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna í landinu. 18,9 prósent allra aðspurðra og 23,4 prósent lýsa sig ósammála fullyrðingunni.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.