Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi í dag tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Hefð er fyrir því að sæma einstaklinga orðunni á þjóðhátíðardeginum, 17. júní.
Þetta eru þeir einstaklingar sem fengu orðuna:
1. Árný J. Guðjohnsen ritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og mannúðarmálum.
2. Björn Jónsson fyrrverandi skólastjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til uppeldismála, menningar og skógræktar.
3. Böðvar Guðmundsson rithöfundur, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta.
4. Guðrún Jónsdóttir bóndi, Arnbjargarlæk, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og velferðarmála.
5. Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til félags- og íþróttamála.
6. Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Fjarðabyggð, riddarakross fyrir framlag til opinberrar stjórnsýslu.
7. Hólmfríður Árnadóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi.
8. Ólafur Eggertsson bóndi, Þorvaldseyri, riddarakross fyrir nýjungar í landbúnaði.
9. Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sviss, riddarakross fyrir framlag til alþjóðlegs hjálparstarfs.
10. Páll Bergþórsson fyrrverandi veðurstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á veðurfari og sögu þess.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ