,,Mér er misboðið. Þetta er þingmaður sem með þessu misbýður okkur nágrönnum sínum á sjálfan þjóðahátíðardaginn," segir nágranni Lilju Mósesdóttur alþingismanns í Starrahólum. Sovéski fáninn blakti við loftnetsstöng á húsi Lilju í dag. Nágranninn segir að Lilja sé ágætisnágranni og vill ekki koma fram undir nafni til að forðast erjur. Þingmaðurinn, sem situr á þingi fyrir VG skýrði uppákomun með því að 18 ára sonur hennar, Jón Reginbaldur, hefði verið að hrekkja móður sína. „Þetta var sonur minn að hrekkja móður sína," sagði hún við vefmiðilinn visir.is
Nágranninn efast um þá frásögn þingmannsins og segir að sovéska fánanum hafi ítrekað verið flaggað við heimili Lilju.
,,Þetta er búið að gerast nokkrum sinnum áður sem er rakinn dónaskapur," segir nágranninn.
Lilja sagði við Vísi að sonur sinn sé að láta reyna á þolmörkin. Hún segir að hann sé meðvitaður um að hún sitji á þingi og sé kölluð ,,komminn" í framhaldi þess að hún náði kjöri. Þarna sé því um að ræða stríðni unglingsins.
Fánanum var snarlega kippt niður í dag eftir að fjölmiðlar komust í málið.
Nágrönnum þingmanns VG misboðið
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna