ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

"Hvernig dirfist" Þorgerður Katrín?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:38 › 17. júní 2009
DV-mynd

"Hvernig dirfist varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra í ríkisstjórn, sem ber óumflýjanlega ábyrgð á áðurnefndu samkomulagi, að varpa af sér og flokki sínum allri ábyrgð af eigin verkum yfir á aðra?" spyr Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, á vefsíðu sinni og gagnrýnir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformann Sjálfstæðisflokksins, harkalega fyrir grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í dag.

Þorgerður Katrín skrifaði grein í Morgunblaðið í dag þar sem hún sagði að það færi greinilega fyrir brjóstið á Jóni Baldvini að það skuli nefnt að það hafi verið regluverk Evrópusambandsins, sem Íslendingar tóku upp í gegnum EES-samninginn, sem gerði Landsbankanum kleift að stofna Icesave-reikningana í Bretlandi og Hollandi.

Þorgerður hefur lýst yfir efasemdum sínum um Icesave-samkomulagið og spurði hvort ástæðan fyrir því að Samfylkingarfólk vildi samþykkja samninginn væri sú að draumur þeirra um ESB-aðild gerðu það fólk reiðubúnara en ella að ganga til samninga um Icesave á nánast hvaða forsendum sem er.

Í grein sinni á heimasíðu sinni gagnrýnir Jón Baldvin málflutning Þorgerðar Katrínar harkalega. Hann furðar sig á hvernig Þorgerður Katrín varpi ábyrgðinni yfir á aðra. "Samstarfsflokkinn, Evrópusambandið, erlendar ríkisstjórnir – alla aðra en þá, sem ábyrgðina bera með aðgerðum sínum og/eða aðgerðaleysi?"

Jón Baldvin segir rangt að Þorgerði að beina ábyrgðinni á því hvernig málum er nú komið á ESB-regluverk og núverandi ríkisstjórn. "Það var ekkert “regluverk Evrópusambandsins” , sem tók ákvörðun um að stofna útibú Landsbankans fyrir sparifjárinnistæður í Bretlandi og Hollandi á árunum 2006-08. Regluverk taka ekki ákvarðanir. Þeir sem tóku þá örlagaríku ákvörðun voru bankastjórnar Landsbankans, þeir Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, á ábyrgð formanns bankaráðsins og varaformanns, þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Kjartans Gunnarssonar. Allt eru þetta dyggir sjálfstæðismenn, Kjartan m.a.s. framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, svo lengi sem elstu menn muna."

Jón Baldvin heldur áfram. "Sök stjórnvalda, þ.e. ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, var að hafa heimilað þessa fjáröflun eigenda og stjórnenda Landsbankans í formi útibús og þar með á ábyrgð íslenskra skattgreiðenda árið 2006. Sök Samfylkingarinnar er sú að hafa ekki knúið forráðamenn Landsbankans til þess að breyta þessari fjáröflunarstarfsemi yfir í breskt dótturfélag, á ábyrgð og með sparifjártryggingu breskra yfirvalda, í tæka tíð, eftir að stjórnvöldum jafnt sem forráðamönnum Lansbankans mátti ljóst vera, að íslenska bankakerfið stefndi í hrun. Það var á valdi íslenskra stjóirnvalda að forða slysinu. Þau brugðust. Ófyrirgefanlegt, sagði Geir H. Haarde, eftir á að hyggja."



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.