ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Fosters ódýrastur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:01 › 17. júní 2009

Fosters er ódýrasti bjórinn í hálfs lítra dósum sem seldur er í ríkinu. Ódýrasti íslenski bjórinn í sams konar umbúðum er hins vegar Egils Pilsner samkvæmt verðkönnun DV á bjór í hálfs lítra dósum. Allt upp í sjötíu prósent af söluverði bjórdósar í vínbúðum renna beint til ríkisins í gegnum ýmis gjöld og skatta. Dýrasti íslenski bjórinn í þessari stærð er Egils Maltbjór á 339 krónur stykkið.

Fosters bjór í hálfs lítra áldós er ódýrasti bjórinn sem seldur er í vínbúðum ÁTVR, samkvæmt verðlista á bjór sem birtur er á vefsíðu stofnunarinnar. Samkvæmt verðsamanburði DV á 38 bjórtegundum sem seldar eru í hálfs lítra bjórdósum með áfengisstyrkleika á bilinu 4 til 6 prósent er Egils Pilsner ódýrasti íslenski bjórinn. Fosters er raunar eini bjórinn sem er með 4 prósent áfengisstyrkleika. Egils Pilsnerinn er með 4,5 prósent styrkleika, jafnmikið og Viking Lager, sem þriðji ódýrasti bjórinn í vínbúðunum.

Fosters er í rauninni langódýrasti hálfs lítra bjórinn í ríkinu. Hver dós kostar 215 krónur, eða 1.290 krónur kippan. Egils Pilsner kostar 237 krónur og Viking Lager kostar 238 krónur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.