Ferðin í Dimmuborgir í Mývatnssveit árið 1972 er eftirminnilegasta ferðalag Herberts Guðmundssonar. DV/Sigtryggur Ari
Eftirminnilegasta ferðalag Herberts Guðmundssonar tónlistarmanns hér innanlands er þegar hann fór í Dimmuborgir í Mývatnssveit með hljómsveitinni Tilveru árið 1972. Tilgangur ferðarinnar var að spila með Tilveru í félagsheimilinu Skjólbrekku. „Við fórum og böðuðum okkur í heitu vatni inni í helli sem ekki er lengur hægt að baða sig í því vatnið þar er orðið svo heitt. Svo var bara svo fallegt þarna,“ segir Herbert sem var aðeins rétt rúmlega tvítugur þegar hann fór í ferðina en hafði þó verið í mörgum öðrum hljómsveitum.
„Maður hafði aldrei komið þarna áður og þetta greip mig strax. Þarna er einstök náttúrufegurð,“ segir Herbert og bætir því við að þessi tími í sveitinni með Tilveru hafi verið mjög góður. „Þetta var alveg yndisleg ferð.“
Nánar um málið í stútfullu og skemmtilegu Ferðablaði sem fylgir DV í dag!





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum