ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

„Besta stúlkan í heiminum“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:04 › 17. júní 2009
Naut samúðar í kínverskum ríkisfjölmiðlum

Naut samúðar í kínverskum ríkisfjölmiðlum

Alþýðudómstóllinn í Badong-sýslu í Kína hefur sýknað þjónustustúlku sem banaði embættismanni kommúnistaflokksins þegar hann hugðist þröngva henni til samræðis við hann. Í þarlendu dagblaði segir að stúlkunni, Deng Yujiao, verði ekki gert að sæta refsingu því ljóst sé að hún hafi banað manninum, Deng Guida, í sjálfsvörn. Yujiao var einnig talið til tekna að hún gaf sig sjálfviljug fram við lögreglu í kjölfar atviksins.

Fyrirfram var talið að ekki yrði beitt silkihönskum gegn þjónustustúlkunni, en umfjöllun um málið í ríkisfjölmiðlum hefur verið afar rík af samúð í hennar garð og á spjallrásum hefur hún verið kölluð „besta stúlkan í heiminum“.

Vinsældir Deng Yujiao eru taldar endurspegla útbreidda reiði almennings í Kína vegna misbeitingar valds af hálfu háttsettra meðlima kommúnistaflokksins, embættismanna og liðsmanna öryggissveita.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.