ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Bara hugleiðingar hjá ríkisstjórninni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:25 › 17. júní 2009
Systurnar Linda og Unnur Óskarsdætur segja ríkisstjórnina hugsa meira um bankana en heimilin.

Systurnar Linda og Unnur Óskarsdætur segja ríkisstjórnina hugsa meira um bankana en heimilin. DV/ HEIÐA

Systurnar Linda og Unnur Óskarsdætur sögðu ríkisstjórnina tvímælalaust leggja meiri áherslu á afkomu bankanna í landinu en heimilanna, þegar blaðamaður DV hitti þær í gær. Þær segja lítið hafa gerst eftir kosningarnar í apríl en höfðu þó fyrir ekki mikla trú á ríkisstjórnarflokkunum tveimur. Þær hafa fundið fyrir efnahagshruninu frá því í haust og missti Linda til að mynda vinnuna í kjölfar hrunsins.

„Ég er atvinnulaus í dag en ég vann í banka. Margir í kringum mig eru að missa húsnæðið, við höfum ekki séð neitt síðan ríkisstjórnin var mynduð.“

Linda segir ríkisstjórnina vera úti á þekju þar sem svo virðist sem menn séu að velta fyrir sér hlutunum. „Mér finnst verst af öllu frá þessu hruni að búið er að vera að tala um að allt eigi að vera gegnsætt og allt eigi að vera uppi á borðum, en síðan úrslitin lágu fyrir hef ég bara ekki heyrt neitt. Það eru engir almennilegir punktar, ekkert plan, bara vangaveltur. Við ætlum hugsanlega að gera þetta og þá kannski gerist hitt. Við viljum bara fá að vita hver vandinn er og hvernig á að takast við hann. Fá eitthvað almennilegt plan fyrir landið okkar.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.