ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

120 þúsund evrur eftir helgi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:30 › 17. júní 2009

Karlheinz Bellmann frá Þýskalandi fær 120 þúsund evrur greiddar út úr gamla Kaupþingi næstkomandi mánudag. Hann fær ekki vextina greidda út frá bankahruninu og ætlar að gefa þá til góðgerðarstarfsemi á Íslandi. Hann gekk á fund skilanefndar Kaupþings með kvikmyndatökumann á hælunum í gærmorgun og fékk loforð um að 20 milljónir króna í eigu hans yrðu greiddar út.

Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður vinnur að gerð heimildamyndar um bankahrunið og hefur meðal annars fylgst með máli Bellmanns. „Ég gekk á fund skilanefndarmanna í gær með tökumann á eftir mér. Ég spurði enn einu sinni hvenær ég fengi peningana mína. Ég spurði líka í nóvember og þá var svarið að menn hefðu ekki hugmynd um það. Með slíkt svar gat ég ekki snúið til Þýskalands aftur og þá var mér sagt að til væru eignir sem myndu hrökkva fyrir innistæðum en eignir bankans yrði að kortleggja. Ég kom síðan aftur á fundinn sem haldinn var af skilanefndinni með kröfuhöfum. Þar sat ég á milli fulltrúa tveggja banka með himinháar kröfur á hendur Kaupþingi.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.