Drjúgur meirihluti landsmanna er þeirrar skoðunar að Íslendingar verði ekki að ábyrgjast greiðslur vegna Icesave-reikninganna. Nær þrír af hverjum fjórum þeirra sem taka afstöðu telja Íslendinga ekki þurfa að borga.
Icesave-samkomulag Íslands við bresk og hollensk stjórnvöld getur valdið stjórnvöldum miklum vandræðum. Ný skoðanakönnun MMR fyrir DV leiðir í ljós að 63 prósent landsmanna eru ósammála því að Íslendingar verði að ábyrgjast innistæður vegna Icesave-reikninganna. Innan við fjórði hver landsmaður tekur hins vegar undir að ábyrgjast verði innistæðurnar.
Þessar niðurstöður bætast ofan á harðvítugar deilur um samkomulagið á þingi, tugþúsundir undirskrifta fólks á Facebook-vefnum gegn samkomulaginu og mótmæli í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir var vitað að skiptar skoðanir eru um samkomulagið í þingflokki vinstri-grænna og ljóst að margir þar eru andvígir samkomulaginu eða fullir efasemda.
45,6 prósent allra sem svöruðu sögðust mjög ósammála fullyrðingunni: „Íslendingar verða að ábyrgjast innistæður vegna Icesave-reikninga í útlöndum.“ 17,5 prósent til viðbótar sögðust frekar ósammála fullyrðingunni. Þetta er samanlagt 63,1 prósent aðspurðra. Fimmtán prósent kváðust frekar sammála fullyrðingunni en aðeins 8,8 prósent sögðust mjög sammála henni. 13,1 prósent sagðist hvorki vera sammála né ósammála.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
