Segir lánið bera merki um misnotkun á aðstöðu

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, lánaði sjálfum sér 40 milljónir króna á 3,5% vöxtum úr lífeyrissjóði í sinni eigu.

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, lánaði sjálfum sér 40 milljónir króna á 3,5% vöxtum úr lífeyrissjóði í sinni eigu.

Laugardagur 13. júní 2009 kl 15:50

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

  • Atli Gíslason segir kjörin langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða.

    Atli Gíslason segir kjörin langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða.

Á netinu gengur nú veðskuldabréf í nafni Sigurjón Þ. Árnasonar fyrrverandi bankastjóra Landsbankans þar sem hann virðist vera að fá 40 milljón króna lán frá Nýja Landsbankanum þann 20. nóvember í fyrra á 3,5% vöxtum. Hins vegar segir Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, sem er höfundur skjalsins, að það sé ekki það bréf sem sé í gildi og lánið sé ekki tekið hjá Nýja Landsbankanum heldur lífeyrissjóði í einkaeigu Sigurjóns sem sé í vörslu Landsbankans. Sigurjón hafi því lánað sjálfum sér 40 milljónir króna á 3,5% vöxtum með veði í hans helmingi húseignar Sigurjóns og eiginkonu hans að Granaskjóli 28.

Þetta segir Sigurður G. í samtali við dv.is í dag.

Á þessa peninga sjálfur
Athygli vakti að í upphaflega skjalinu sem er í umferð á netinu stendur að fjöldi afborgana sé ein þann 20. nóvember 2009 en vextir reiknist frá 20. Nóvember 2028. Lánið myndi því í raun ekki bera neina vexti.
Sigurður G. segir að skjalinu hafi verið þinglýst áður en mistökin uppgötvuðust. Skjal sem leiðréttir mistökin hafi einnig verið þinglýst. Í því standi að lánið sé greitt með einni afborgun 20. nóvember 2028 og það beri vexti frá 20. nóvember 2008 í stað 2028. Skilmálabreytingin hafi verið gefin út 3. desember.

Þrátt fyrir að vera að lána sjálfum sér, með veði í eigin húsnæði, greiðir Sigurjón 3,5% vexti. Aðspurður hvort hann telji ekkert óeðlilegt lán sem þetta segir Sigurður: „Hann á þessa peninga sjálfur.“

Mistnotkun á aðstöðu
Atli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri grænna, segir í samtali við dv.is að tímalengd lánsins sé furðu löng sem og langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða á sama tíma.

„Tímalengd lánsins er ótrúlega löng. Þetta ber öll merki um að vera misnotkun á aðstöðu. Þetta er langt undir þeim vöxtum sem öðrum stóð til boða á sama tíma,“ segir Atli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri Grænna.

Endastafir félaga í Lúxemborg
Samkvæmt veðskuldabréfinu er kröfuhafinn Fjárvörslureikningur3 NBI hf. SA sem er í eigu Sigurjóns sjálfs. Athygli vekur að félagið hefur endastafina SA en félög í Lúxemburg hafa það einkenni. Sigurður segir þó að lífeyrissjóðurinn sé ekki staðsettur í Lúxemborg heldur Landsbankanum í Austurstræti.

Sigurður G. Guðjónsson vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið og vísaði á Sigurjón Þ. Árnason.

Enginn einn aðili getur átt lífeyrissjóði
„Það getur enginn einn aðili verið eigandi að íslenskum lífeyrissjóði. Það fellur ekki að íslenskum lögum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða.

Fyrrverandi forstjóri lífeyrissjóðs sem DV ræddi við sagðist ekki þekkja nein fordæmi fyrir því að einstaklingar hérlendis hafi átt lífeyrissjóð.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 22:15

Milljarður hungraðra í heiminum

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 18:30

„Fíflalæti sem enduðu með slysi“

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 17:14

Bretar reka íranska diplómata úr landi

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 16:49

Áform um rýmri fóstureyðingarlög

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 16:22

Bongóblíða á Hróarskeldu

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 16:16

Áfram Eva Joly

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 15:32

Dóp í borginni um helgina

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 15:00

Vann eineltismál gegn ríkinu

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 14:47

Google síar klám í Kína

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 14:26

18 tonn af bjór enduðu utan vegar

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 13:27

Hótaði félagsráðgjafa og fjölskyldu hans

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 13:02

Lögmæt húsleit hjá Hannesi

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 12:35

Fjórtán í annarlegu ástandi undir stýri

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 12:25

Fjölskyldufaðir: „Hann gat hótað mér en...“

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 11:35

„Veistu hver þetta er?“

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 11:35

Lánshæfi Íslands svipað Kasakstan

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 11:27

Olís lækkar aftur og skýtur á stjórnvöld

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 09:57

Björgólfur Thor: Ég vil gera mitt til að hjálpa

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 09:45

Hannes Smára fyrir dómi

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 09:35

„Ég skulda mikið, ég tapaði öllu“