Bassaleikarinn og djasstónlistarmaðurinn Tómas R. Einarsson tók þátt í hústökunni á Fríkirkjuvegi 11 á mánudagskvöld. Galvaskur með reiðhjólahjálm á höfði gerði hann tilraun til að frelsa unga konu sem hafði sig mikið í frammi úr haldi lögreglu. Hann lenti fyrir vikið í orðaskaki og ryskingum við tvær lögreglukonur.
„Ég var að skoða þetta nýja hús okkar og kom ungri konu til hjálpar sem var í haldi lögreglu innandyra vegna þess að hún neitaði að gefa upp nafn og kennitölu,“ segir bassaleikarinn
góðkunni Tómas R. Einarsson sem var í hópi hústökufólksins sem gerði sig heimakomið á Fríkirkjuvegi 11 á mánudagskvöld. Húsið er sem kunnugt er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og hústökufólkið lítur því á bygginguna sem eign þjóðarinnar þar sem Icesave-reikningar Landsbankans hafi bundið þjóðina á skuldaklafa.
Tómas lenti upp á kant við lögregluna innandyra en viðskiptum hans við laganna verði lauk með því að upp úr sauð í anddyri hússins.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir