Um 300 af boðsgestum Landsbanka Íslands átu risotto með gullflögum í ferð til ítölsku borgarinnar Mílánó sem bankinn bauð til í september 2007. Tvær farþegarþotur voru leigðar undir boðsgestina og var gist á einu flottasta hóteli Mílanó, Principe di Savoia. Áætla má að kostnaðurinn við boðsferðina hafi verið tugir milljóna króna.
Frá þessu er greint í grein í nýjasta tölublaði Mannlífs sem út kom í dag. Í greininni er sagt ítarlega frá tveimur boðsferðum Landsbankans til Hong Kong og Mílanó og þeim munaði sem bankinn bauð upp á í ferðunum auk þess sem sagt er frá innhúsblaði bankans, Moment, sem er dásamleg heimild um stemninguna í bankanum í góðærinu.
Í greininni er viðtal við einn af boðsgestunum í Mílanóferðinni sem segir að gullið hafi ekki verið merkilegt undir tönn. „Það var bara málmbragð af því,“ segir viðmælandinn og bætir því við að hann hafi ekki vitað að hægt væri að borða gull fyrr en boðið var upp á það í ferðinni.
Meira um málið í glænýju tölublaði Mannlífs






Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“