ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Lífeyrissjóðir, FME og bankar rúnir trausti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:25 › 27. maí 2009

Aðeins segjast 6 prósent þjóðarinnar bera mikið traust til Fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins samkvæmt nýrri könnun MMR en aðeins 14,9 prósent segjast bera mikið traust til lífeyrissjóðanna en í desember síðastliðnum mældist traust þeirra 30,5 prósent. 51,4 prósent aðspurðra sögðust hins vegar bera lítið traust til þeirra.

Háskóli Íslands, lögreglan, RÚV og Háskólinn í Reykjavík njóta mest trausts samkvæmt könnun MMR og þá fækkar heldur í hópi þeirra sem segjast bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar. 49,7 prósent segjast þó bera lítið traust til hennar og aðeins 23,7 prósent segjast bera mikið traust.

Engar stofnanir komst þó með tærnar þar sem Fjármálaeftirlitið (FME) og bankakerfið hafa hælana í trausti. 70,1 prósent aðspurðra í könnun MMR sögðust bera lítið traust til FME og 71,6 prósent sögðust bera lítið traust til bankakerfisins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.