ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Nýr forstjóri Skeljungs: Hætti vegna trúnaðarbrests

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:27 › 27. maí 2009
Ný forstjóri Skeljungs, Einar Örn Ólafsson, hætti hjá Íslandsbanka vegna trúnaðarbrests fyrir mánuði síðan en talið var að hann væri farinn að leita hófanna annars staðar í atvinnulífinu.

Ný forstjóri Skeljungs, Einar Örn Ólafsson, hætti hjá Íslandsbanka vegna trúnaðarbrests fyrir mánuði síðan en talið var að hann væri farinn að leita hófanna annars staðar í atvinnulífinu.

  • Tilkynnt var um það í gær að Einar Örn Ólafsson tæki við sem forstjóri Skeljungs.

    Tilkynnt var um það í gær að Einar Örn Ólafsson tæki við sem forstjóri Skeljungs.

Orsökin fyrir því að Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og nýráðinn forstjóri Skeljungs, hætti hjá bankanum í lok síðasta mánaðar var trúnaðarbrestur á milli hans og forsvarsmanna bankans. Einar Örn mun um nokkurt skeið hafa hugsað sér að hætta í bankanum og finna sér aðra vinnu. Einar Örn var nokkuð í fjölmiðlum fyrr á árinu þegar Íslandsbanki seldi Árvakur til Þórsmerkur. Einar hafði yfirumsjón með sölunni.

Forsvarsmenn bankans mátu það svo að það væri óheppilegt að Einar Örn héldi áfram að starfa í bankanum ef hann væri að fara að hætta þar sem hann hefði, starfs síns vegna, aðgang að trúnaðarupplýsingum í bankanum sem gætu nýst honum eða aðilum tengdum honum. Einar Örn þjónustaði meðal annars Skeljung í störfum sínum en félagið skipti um eigendur í fyrra og hafði Glitnir, nú Íslandsbanki, þá milligöngu um söluna. Íslandsbanki er hins vegar næst stærsti eigandi félagsins með 49 prósent eignarhlut.

Einari Erni var því gert að hætta með mjög litlum fyrirvara og var það fyrst og fremst fyrirbyggjandi aðgerð til að verja hagsmuni bankans. Trúnaðarbrestur Einars gagnvart bankanum mun hins vegar meðal annars hafa komið fram í tölvupóstskeytum sem innra eftirlit bankans skoðaði og leiddi það meðal annars til starfsloka hans.

Í svari Íslandsbanka við fyrirspurn DV um orsakirnar fyrir starfslokum Einars Arnar kemur fram að hagsmunir bankans og Einars Arnar hafi ekki lengur farið saman og því hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að hann ætti að hætta. Þetta er sama svar og kom fram í fjölmiðlum fyrir tæpum mánuði þegar Einar hætti í bankanum. Samkvæmt heimildum DV mun aðgerð bankans gegn Einari fyrst og fremst hafa verið fyrirbyggjandi, menn hafi viljað koma í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra á milli Einars og bankans þar sem hann var farinn að hugsa sér til hreyfings. Því er hins vegar hafnað af bankanum að Einar Örn hafi verið rekinn eða að hann hafi gerst sekur um lögbrot í starfi.

Þrátt fyrir trúnaðarbrestinn sem varð til þess að starfslokum Einars var hraðað mun málið hins vegar ekki hafa neina eftirmála samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.